Um safnið
Fuglasafn Sigurgeirs …
… var opnað 17. ágúst 2008 og er það eitt flottasta náttúrugripasafn landsins, það vantar aðeins 2 fugla til að eiga alla Íslenska varpfugla, annan þeirra, haförn, erum við með í láni frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Akureyrarstofu, en hinn sem er þórshani vantar okkur.
Lokað vegna Covid-19 !
Fuglasafn Sigurgeirs er lokað í augnablikinu vegna Covid faraldursins sem geisar.
Opnunartímar
15.-31. maí
12:00 til 17:00 alla daga
1. júní til 24. ágúst
kl. 9:00 til 18:00 alla daga
25. ágúst til 31. október
kl. 12:00 til 17:00 alla daga
1. nóvember til 14. maí
kl. 14:00 til 16:00
Verðskrá
Fullorðnir – 1.800 kr
Börn 7 – 14 ára – 1000 kr
Börn 0 – 6 ára – Frítt
Lífeyrisþegar – 1000 kr
Hópar (10 eða fl.) – 1.500 kr
Mývatn og Laxá er þekkt fyrir ríkulegt og fjölbreytt fuglalíf, sérstaklega er þar mikið af öndum og öðrum vatnafuglum. Þar verpa 14 andategundir, sem er einsdæmi á Norðurhveli jarðar. Þéttleikinn er mikill og tegundasamsetningin sérstæð.
Hægt er að skoða fugla við vatnið árið um kring. Á veturna eru stórar vakir þar sem álftir, húsendur, gulendur og stokkendur halda sig. Farfuglarnir fara að koma í apríl. Skemmtilegasti tíminn við vatnið er maí og júní, en mikið er þó um að vera allt sumarið.
Styrktaraðilar
Fuglasafn Sigurgeirs á sér marga sterka bakhjarla




Við erum hér
Ytri-Neslöndum, 660 Mývatni